Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. nóvember 2017 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta innra skipulagi og innrétta morgunverðarkaffihús í húsi á lóð nr. 40 við Klapparstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2017.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2017.