Á fundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2016 var lögð fram fyrirspurn Ragnhildar Ingólfsdóttur f.h. Jóhönnu Harðardóttur, mótt. 16. mars 2016, um að setja utanáliggjandi svalir á 2. hæð hússins á lóð nr. 29 við Snorrabraut. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. júní 2016.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. júní 2016.