Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 25. febrúar 2016, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á umsókn fyrirtækisins
Jórvíkin fjárfestingar ehf.
, Kirkjutorgi 6, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að Laugavegi 8B. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. mars 2016.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 4. mars 2016. Samræmist ekki deiliskipulagi.