Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. nóvember 2016 var lögð fram fyrirspurn
ASK arkitekta ehf.
, mótt. 1. nóvember 2016, um rekstur matvöruverslunar í húsinu á lóð nr. 2 við Skútuvog. Einnig er lagt fram bréf
ASK Arkitekta ehf.
, dags. 1. nóvember 2016. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. nóvember 2016.