Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 541
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Ragnars Auðuns Birgissonar mótt. 27. maí 2015 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Suðurlandsbrautar, Hallamúla, Ármúla og Vegmúla vegna lóðarinnar nr. 9 við Ármúla. Í breytingunni felst að heimilt er að lyftu- og tæknirými standi upp úr núverandi mænishæð húsa eins og búnaður og öryggissjónarmið krefjast, samkvæmt tillögu THG Arkitekta ehf. dags. 4. júní 2015.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ármúla 7 og 11 og Suðurlandsbraut 8, 10 og 12.