Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. júní 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja gluggakvist á norðvesturhlið, koma fyrir þakglugga á mæni, endurnýja eldri þakglugga og byggja svalir á suðurgafl fjölbýlishússins á lóð nr. 15 við Ránargötu. Grenndarynning stóð frá 29. júní til og með 27. júlí 2011. Engar athugasemdir bárust. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrátt. Stækkun: xx rúmm. Gjald kr. 8.000 + ??
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.