Á fundi skipulagsfulltrúa 2. maí 2014 var lögð fram fyrirspurn
Rent-leigumiðlunar ehf.
dags. 29. apríl 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðanna nr. 34 og 36 við Lindargötu. Í breytingunni felst sameining lóða, samkvæmt uppdr. Arko dags. 25. apríl 2014. Umsókninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.