Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. desember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja opið skýli fyrir úrgang til endurvinnslu við stoðvegg á austur lóðamörkum við hús á lóð nr. 1-3 við Grjótháls. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. desember 2016. Stækkun: B-rými 45,4 ferm., 156,6 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 8. desember 2016. Vakin er athygli á að hægt er að sækja um breytingu á deiliskipulagi. .