Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2022 þar sem sótt er um leyfi til að gera viðbyggingu úr timbri framan við inngang og gera svalir ofan á hana, auk þess sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á húsi á lóð nr. 33 við Vesturgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 20. september 2022 til og með 18. október 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.