Á fundi skipulagsfulltrúa 4. desember 2015 var lögð fram umsókn
GP arkitekta ehf.
, mótt. 25. nóvember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.250.1, Skipholtsreits, vegna lóðarinnar nr. 29 og 29A við Skipholt. Í breytingunni felst að hækka húsið á lóðinni og bæta við einni hæð, setja kvisti á 2/3 hluta þakflöts og svalir á suðurhlið húss nr. 29, setja stiga/lyftuhús auk svalagangs norðan við húsið nr. 29A og rífa núverandi stigahús inn í húsinu, samkvæmt uppdr.
GP arkitekta ehf.
, dags. 25. nóvember 2015. Einnig er lagt fram bréf
GP arkitekta ehf.
, dags. 25. nóvember 2015. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Frestað. Leiðrétt gögn og samþykki meðlóðarhafa hafa ekki borist embætti skipulagsfulltrúa.