Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. desember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir flóttasvölum á norðvestur- og suðvesturhlið, uppfæra brunamerkingar og gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum í norðausturhluta kjallara gististaðar í flokki II á lóð nr. 24 við Freyjugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2017.