Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. febrúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki l - tegund e, kaffihús, í húsi á lóð nr. 3 við Grettisgötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2018. Gjald kr. 11.000
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2018.