Á fundi skipulagsfulltrúa 18. júlí 2014 var lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 11. júlí 2014 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Northern Light Museum að Hallveigarstíg 1. Sótt er um um rekstrarleyfi fyrir veitingastað/skemmtistað í fl. III með veitingatíma áfengis til kl. 04:30 aðfaranótt laugardags, sunnudags eða almenns frídags. Erindi var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2014.
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2014.