Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. desember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að stækka svalir 0216, 0217 og 0314 og til að innrétta snyrtistofu í bílgeymslu 0101 í húsi á lóð nr. 50A við Skipholt. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. desember 2017. Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt. Gjald kr. 11.000
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. desember 2017 samþykkt.