Bankastræti 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 691
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Plúsarkitekta ehf. mótt. 28. september 2017 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.171.2 vegna lóðarinnar nr. 12 við Bankastræti. Í breytingunni felst að koma fyrir geymslu, sorpgerði og svölum á nýbyggingu á baklóð, samkvæmt tillögu Plúsarkitekta ehf. dags. 30. október 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 21. nóvember 2017 til og með 19. desember 2017. Engar athugasemdir bárust en tölvupóstur barst frá Guðmundi Hjaltasyni dags. 11. desember 2017 og húsfélaginu Ingólfsstræti 4, dags. 19. janúar 2017 þar sem óskað er eftir frekari gögnum til upplýsinga. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2018. Tillagan var grenndarkynnt að nýju frá 5. apríl 2018 til og með 7. maí 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Benóný Ægisson ásamt fylgiskjölum dags. 7. maí 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. maí 2018 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101382 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007587
Síðasta markaðsverð
89.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 157 m² · 25.01.2007
Kaupskrá 1 eign
89.000.000 kr. 25.01.2007
Atvinnuhúsnæði · 157 m² · bygg. 1920 · HMS
Deiliskipulag
Stgr. 1.171.2, Skólavörðustígur, Bergstaðastræti, Hallveigarstígur, Ingólfsstræti og Bankastræti
Samþykkt 08.10.2002 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag