Á fundi skipulagsfulltrúa 7. mars 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. febrúar 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi á útiveitingasvæði í Vallarstræti framan við hús nr. 12 og 14 á lóð nr. 12 við Austurstræti. Einnig er lögð fram tillaga Landslags f.h. Reita hf. dags. í febrúar 2014. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. mars 2014.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. mars 2014.