Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2022 var lögð fram fyrirspurn Myndlistarskólans í Reykjavík ses. dags. 21. júní 2022 um breytingu á deiliskipulagi Lýsisreits vegna lóðarinnar nr. 121 við Hringbraut. sem felst í að heimilt verði að breyta húsi Myndlistarskólans í íbúðarhús. Einnig er lögð fram kynning ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2022.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 7. júlí 2022, samþykkt.