Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 587
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Urban arkitekta ehf. f.h. Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf., mótt. 11. apríl 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálahverfis vegna lóðarinnar nr. 7-11 við Grjótháls. Í breytingunni felst að utan við byggingarreit komi belti (ytri byggingarreitur) þar sem heimilað er að reisa lagertanka, tæknibúnað og vörumóttökurými/lyftibryggjur, samkvæmt uppdr. Urban arkitekta ehf. , dags. 11. apríl 2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 27. apríl til og með 25. maí 2016. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

110 Reykjavík
Landnúmer: 111019 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010868
Deiliskipulag
Hálsahverfi
Samþykkt 26.09.2000 · Deiliskipulag. Nýtt DSK