Á fundi skipulagsfulltrúa 10. júní 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júní 2016 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III, tegund F, á 1. hæð í suðurenda húss á lóð nr. 3 við Vatnsstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2016.