Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. janúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Jóns Karls Helgasonar dags. 6. janúar 2020 ásamt bréfi
Þorsteins Geirharðssonar
arkitekts dags. 6. janúar 2020 um að setja svalir á hluta samfellds kvist á suðurhlið hússins á lóð nr. 9 við Sjafnargötu, samkvæmt tillögu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2020.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2020.