Fyrirspurn
Lögð fram umsókn PK dM arkitekta ehf., mótt. 23. janúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 4 við Lyngháls. Í breytingunni felst að byggingarreitur 5. hæðar stækkar út í útmörk 4. hæðar núverandi húss ásamt því að hann stækkar til suðurs, hámarkshæð útveggja og þaks 5. hæðar hækkar um 1,3 metra, lyftuhús og lagnaskökt mega ná 2 metra upp fyrir hámarkshæð 5. hæðar, nýtingarhlutfall ofanjarðar er hækkað ásamt því að áfram er nýtt heimild í kafla 2.7 til að auka nýtingarhlutfall sem nemur bílageymslum neðanjarðar, neðanjarðargeymslum og tæknirýmum á lóðinni, heimilt er að byggja skyggni á norðurhlið byggingar allt að 2 metra út fyrir byggingarreit og bílastæðaskilmálar eru endurskoðaðir, samkvæmt uppdr. PK dM arkitekta ehf., dags. 23. janúar 2017. Einnig er lögð fram greinargerð, dags. 23. janúar 2017.