Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. september 2016 var lögð fram fyrirspurn
PK-arkitekta ehf.
, mótt. 2. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 21 við Kirkjuteig sem felst í fjölgun íbúða í húsinu úr fjórum í átta, möguleika á verslunar og/eða þjónustustarfsemi á jarðhæð og fjölgun bílastæða úr fimm í átta, samkvæmt uppdr.
PK-arkitekta ehf.
, dags. 24. ágúst 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. september 2016.