Köllunarklettsvegur 2
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 895
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn ASK Arkitekta ehf. dags. 10. maí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 2 við Köllunarklettsveg. Í breytingunni felst stækkun á lóð til vesturs, stækkun á byggingarreit vegna viðbygginga og hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 11. júlí 2022. Bílastæði á lóð verða í samræmi við Bíla- og hjólastæðastefnu Reykjavíkurborgar. Einnig er lagt fram samþykki Faxaflóahafna dags. 29. apríl 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 11. október 2022 til og með 8. nóvember 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingar: Sturla Geirsson f.h. Kró Design dags. 17. október 2022, Helgi Lárusson f.h. Endurvinnslunnar hf. dags. 18. október 2022, Veitur ohf dags. 26. október 2022 og Pétur Jónsson hjá Eflu f.h. Sindraport hf. dags. 7. nóvember 2022.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

Landnúmer: 180643 → skrá.is
Hnitnúmer: 10066733
Síðasta markaðsverð
1.050.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 2952 m² · 05.06.2024
Kaupskrá 1 eign
1.050.000.000 kr. 05.06.2024
Atvinnuhúsnæði · 2952 m² · bygg. 1999 · HMS
Deiliskipulag
Deiliskipulag Klettasvæðis
Samþykkt 26.10.1999 · Deiliskipulag. Nýtt DSK