Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 726
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Sigurðar Halldórssonar arkit. f.h. Framkvæmdafélagsins Skjald ehf. dags. 9. apríl 2019 ásamt bréfi dags. 9. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Ingólfsstræti. Í breytingunni felst að heimila stækkun á inndreginni efstu hæð hússins og nýjan inngang frá Skúlagötu, samkvæmt uppdrætti Arkitekta Laugavegi 164 ehf. /Glámu-Kím dags. 9. apríl 2019.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018