Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Yngva Sindrasonar dags. 28. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.190.2, Njálsgötureits 2, vegna lóðarinnar nr. 5 við Bergþórugötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og hækkun húss, samkvæmt uppdrætti Á stofunni arkitektar ehf. dags. 24. apríl 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 1. júní til og með 29. júní 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Paraskevi Tatsis dags. 11. júní 2015, Jóhanna Margrét Öxnevad dags. 12. júní 2015, Ragnhildur Eggertsdóttir, dags. 12. júní 2015 og Eva Huld Friðriksdóttir og Hlynur Johnsen dags. 29. júní 2015.
Svar
Frestað. Umsækjandi hafi sambandi við embætti skipulagsfulltrúa.