Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III, teg. skemmtistaður á 2. og 3. hæð húss á lóð nr. 3 við Austurstræti. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2019. Erindi fylgir minnisblað um brunavarnir frá EFLU dags. 15. mars 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2019.