Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. júlí 2013.Spurt er hvort leyft yrði að starfrækja gallerí og kaffihús í flokki II á jarðhæð hússins á lóðinni nr. 13-15 við Pósthússtræti. Málinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra 1. ágúst 2013 og er nú lagt fram ásamt umsögn, dags. 6. ágúst 2013.
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. ágúst 2013.