Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. febrúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að sameina í eina eign, byggja við anddyri á suðurhlið, byggja yfir glerhluta húss, breyta gluggum á húsi á lóð nr. 69 við Sogaveg. Erindi var grenndarkynnt frá 7. apríl til og með 5. maí 2017. Engar athugasemdir bárust. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. febrúar 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. febrúar 2017. Stækkun: 35,5 ferm. 66,4 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.