Fyrirspurn
Lögð fram tillaga Arkþings ehf., ódags., að deiliskipulagi sem nær til reita 1.745.4, 1.745.0 og 1.745.1 og afmarkast af Listabraut í norðri, Bústaðavegi í suðri, Efstaleiti í vestri og Háaleitisbraut í austri. Svæðið er í dag 5 lóðir, Efstaleiti 1, 3, 5, 7 og 9. Í tillögunni felst uppbygging á lóð RÚV við Efstaleiti og samliggjandi lóðum innan reitsins með þéttingu og gæði byggðar að leiðarljósi.