Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júlí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. júlí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun úr íbúðarhúsi í skrifstofuhúsnæði, byggja tengigang við norður lóðarmörk ásamt tilheyrandi breytingum á innra skipulagi og útlitsbreytingum því til samræmis, 8-10 starfsmenn í húsi á lóð nr. 6A við Hellusund. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2022.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2022 samþykkt.