Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. nóvember 2021 var lögð fram fyrirspurn
THG Arkitekta ehf.
dags. 11. nóvember 2021 um að breyta notkun rýmis í húsinu á lóð nr. 12 við Skólavörðustíg, sem snýr að Bergstaðastræti, í kaffihús og vínbar, samkvæmt tillögu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. desember 2021.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. desember 2021 samþykkt.