Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2022 var lögð fram fyrirspurn Eldjárns Árnasonar dags. 27. apríl 2022 um hækkun hússins á lóð nr. 16 við Freyjugötu um eina hæð ásamt því að breyta kvisti á framhlið hússins, samkvæmt uppdr. Arktika dags. 16. apríl 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júní 2022.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2022.