Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 94 við Urðarbrunn. Einnig er lagður fram tölvupóstur embættis byggingarfulltrúa dags. 27. maí 2021 þar sem umsagnarbeiðni er dregin til baka. Stærð er: 259,1 ferm., 866,7 rúmm. Gjald kr.12.100.
Svar
Umsagnarbeiðni dregin til baka, sbr. tölvupóstur byggingarfulltrúa, dags. 27. maí 2021.