Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. maí 2021 var lögð fram fyrirspurn Pálma Símonarsonar dags. 3. maí 2021 um að hækka ris hússins á lóð nr. 11 við Hraunteig samhliða endurnýjun á þaki ásamt því að færa útlínur á þakkanti til upprunalegrar teikningar af húsinu frá 1957. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2021.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. maí 2021, samþykkt.