Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. október 2022 var lögð fram fyrirspurn Nönnu Rúnar Ásgeirsdóttur, dags. 10. október 2022, um að bæta við kvisti og inndregnum svölum í risi hússins á lóð nr. 15 við Úthlíð, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2022.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. nóvember 2022, samþykkt.