Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. nóvember 2020 var lögð fram fyrirspurn Arndísar Kristjánsdóttur dags. 21. ágúst 2020 ásamt greinargerð dags. 6. nóvember 2020 um stækkun hússins á lóð nr. 3A við Brekkustíg sem felst í að gera viðbyggingu á einni hæð aftan við húsið með þaksvölum og setja kvist á götuhlið sem verður spegilmynd núverandi kvists á þakhæð, samkvæmt fyrirspurnaruppdr. Birtu Fróðadóttur arkitekts dags. 5. nóvember 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. nóvember 2020.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. nóvember 2020, samþykkt.