Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. maí 2020 var lögð fram fyrirspurn Hlyns Hreinssonar dags. 18. maí 2020 um hækkun á þaki hússins á lóð nr. 50 við Laufásveg, stækkun húss til norðvesturs og færa inngang í kjallara á norðurhlið, stækkun á kjallara til suðvesturs með svölum á 1. hæð, breyta notkun skúrs á bakslóð í íbúð, færa innkeyrslu o.fl. samkvæmt tillögu UNDRA ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020.