Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 29. apríl 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Staðahverfis vegna lóðarinnar nr. 41 við Bakkastaði. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til vesturs fyrir viðbyggingu, samkvæmt uppdr. Arkþings - Nordic ehf. dags. 7. apríl 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. júní 2020 til og með 30. júní 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.