Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. apríl 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. apríl 2021 þar sem spurt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara húss nr. 50 lóð nr. 36-60 við Hraunbæ. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. maí 2021. Erindi fylgja ljósmyndir og eignaskiptayfirlýsing dags. 2006.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. maí 2021, samþykkt.