Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. október 2019 var lögð fram fyrirspurn Ingu Jónu Halldórsdóttur dags. 9. júlí 2019 um breytingu á notkun bílskúrs á lóð nr. 6 við Teigahverfi í vinnustofu/stúdíó. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019.