Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. september 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. september 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á lóð nr. 10 við Iðunnarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2019. Stærðir: A-rými: 276.1 ferm., 962.9 rúmm. B-rými 7.7 ferm. xx rúmm. Erindi fylgir mæliblað 2.693.7 endurútgefið 11. júní 2019 og hæðablað 2.693.7 útgáfa B3 dags. september 2009. Gjald kr. 11.200
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2019 samþykkt.