Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 744
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. ágúst 2019 var lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags 28. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar Örfirisey vegna lóðarinnar nr. 6 við Hólmaslóð. Í breytingunni felst breyting á þakflötum í þaksvalir samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti ASK Arkitekta ehf. dags. 28. júní 2019. Erindinu var vísað til umsagnar Faxaflóahafnar og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Faxaflóahafna dags. 13. september 2019.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Hólmaslóð 3,4,6 og 8 og Fiskslóð 75-83.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.