Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn Sifjar Jónsdóttur dags. 8. apríl 2019 um að setja svalir á 2. hæð hússins á lóð nr. 11 við Öldugötu sem snúa að garði til suðurs, samkvæmt uppdr. P
ARK teiknistofu sf.
dags. 6. mars 2007. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2019.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. maí 2019, samþykkt.