Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn Gunnars Sigurðssonar dags. 12. mars 2019 um að koma fyrir svölum á norðvesturhlið, bakvegg, 1. og 2. hæðar hússins á lóð nr. .45 við Hrísateig, samkvæmt tillögu/skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. mars 2019.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. mars 2019.