Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. mars 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í suðausturhorni lóðar nr. 16A við Flókagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 4. apríl 2019 til og með 2. maí 2019. Engar athugasemdir bárust. Stærðir: 36.4 ferm., 107.7 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.247.2 dags. í september 1948. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.