Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 716
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. febrúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílgeymslu á norðvesturhlið, byggja sólstofu við eldhús ásamt því að byggja yfir svalir og gera franskar svalir á svefnherbergi á 2. hæð raðhúss á lóð nr. 21 við Háagerði. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. janúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2019. Einnig fylgir bréf umsækjanda dags. 30. janúar 2019. Stækkun: 55,7 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019 samþykkt.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107987 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011098
Síðasta markaðsverð
30.500.000 kr.
Sérbýli · 125 m² · 11.06.2007
Kaupskrá 1 eign
30.500.000 kr. 11.06.2007
Sérbýli · 125 m² · 4 herb. · bygg. 1957 · HMS
Deiliskipulag
Háagerði 1-79 og Sogavegur 98-106
Samþykkt 29.06.1999 · Deiliskipulag. Nýtt DSK