Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 729
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Eggerts Antoníusar Ólafssonar dags. 20. maí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts I, neðra Breiðholts, vegna lóðarinnar nr. 5-11 við Lambastekk. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir bílgeymslu við norðurhlið hússins nr. 9 við Lambastekk ásamt breytingu á notkun núverandi bílgeymslu í vinnustofu og geymslu, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Teiknistofu arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar ehf. dags. 20. maí 2019. Einnig er lögð fram yfirlýsing eigenda að Lambastekk 7 dags. 27. febrúar 2019.
Svar

Vísað til meðferðar verkefnisstjóra.