Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. júlí 2018 var lagt fram bréf umboðsmanns borgarbúa dags. 6. júlí 2018 þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa um hvort fyrirhugaður rekstur stuðningsheimilis í Þingvaði 35 sé í samræmi við skipulagsáætlanir þ.m.t. heimila landnotkun. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu sviðsstjóra og skipulagsfulltrúa dags. 17. september 2018.
Svar
Umsögn skrifstofu sviðsstjóra og skipulagsfulltrúa dags. 17. september 2018 samþykkt.