Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Richards Ólafs Briem dags. 12. desember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis vegna lóðarinnar nr. 29 við Ljárskóga. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir sérstæða, tvöfalda bílageymslu í suðvesturhorni lóðarinnar og að breyta núverandi innbyggðri bílageymslu ásamt geymslurými á jarðhæð í íbúð, samkvæmt uppdr.
VA arkitekta ehf.
dags. 21. janúar 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. febrúar 2019 til og með 25. mars 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar