Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. júní 2018 var lögð fram fyrirspurn Styrmis Bjarts Karlssonar dags. 18. apríl 2018 um hækkun hússins á lóð nr. 44-45 við Gvendargeisla sem fels í að byggja inndregna hæð ofan á húsið með þaksvölum í suður eða norður. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júní 2018.
Svar
Neikvætt. Samræmist ekki deiliskipulagi, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júní 2018.